02.11.1934
Neðri deild: 26. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (4061)
122. mál, Kreppulánasjóður
Hannes Jónsson:
Ég minnist þess, að svipað frv. hefir áður verið til umr. hér á þingi. Er nákvæmlega sama mark á þessum tveim frv. Þau eru bæði stíluð fyrst og fremst gegn einum manni í stj. Kreppulánasjóðs, Jóni í Stóradal. Það er eins og lögð sé sérstök áherzla á að koma honum úr sjóðstj. Hver er ástæðan? Ég held, að enginn hafi leyft sér að bera brigður á, að hann hafi leyst af hendi störf sín þar eins og vera ber. Enda mun hér ekki vera um það að ræða að fækka mönnum, heldur að færa starfið af Jóni í Stóradal yfir á hv. þm. Mýr. Nú efast ég um, að þetta sé að nokkru leyti gert í samráði við hv. þm. Mýr. Ég efast um, að honum sé nokkur þægð í því, að Jóni sé sparkað til þess að koma honum sjálfum að.
Þessir miklu sparnaðarmenn beina ekki skeytum sínum í réttar áttir. Gæti ég trúað, að annarsstaðar mætti fá allt eins góðan höggstað.
Þó að margir hafi nú sótt um lán úr Kreppulánasjóði og margar þessar lánbeiðnir hafi verið afgreiddar nú þegar, er eftir að vinna úr miklum hluta lánbeiðnanna, sem fyrir liggja. Úti um land er nú verið að undirbúa nýjar lánbeiðnir. Og þó að mikið hafi þegar áunnizt í þessum efnum, er þó enn margt eftir að gera. Þó að margir bændur séu þegar komnir með lánbeiðnir, er það víst, að margir munu enn bætast þar við. Aðstaðan mun verða sú við lok þessa árs, að verða mun knýjandi nauðsyn fyrir marga bændur að leita til Kreppulánasjóðs, ef þeir eiga að geta haldið áfram búskap sínum, þótt sumir hafi ætlað að draga það í lengstu lög.