13.11.1934
Neðri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (4067)

122. mál, Kreppulánasjóður

Frsm. (Héðinn Valdimarsson):

Ég lít svo á, að hvort sem er um að ræða aðalstarf eða aukastarf, þá verði að gera ráð fyrir því, að mennirnir verði að leysa jafnt starf af hendi allir, svo að ekki sé ástæða til að greiða þessum eina manni meira en hinum fyrir þetta starf.