21.12.1934
Sameinað þing: 27. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (408)

1. mál, fjárlög 1935

7) JakM:

Þó að meiri hl. telji rétt að níðast á embættis- og starfsmönnum hins opinbera, sem taka laun samkv. launalögum, þá álít ég ekki, að neitt sé bætt úr skák með því að beita þá, sem ekki taka laun samkv. launalögum, sömu tökum nú á þessu þingi, þó að það sé sýnilega ætlun meiri hl. að láta lækkunina aðeins koma niður á þeim embættismönnum, sem fá laun eftir launal., og greiði því ekki atkv.