10.11.1934
Neðri deild: 33. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í C-deild Alþingistíðinda. (4089)

50. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar

Hannes Jónsson:

Það er gott fyrir hv. d. að heyra það frá einum af landbnm. sjálfum, að það er ásetningur að sofa á þessu máli. Og ef hv. form. landbn. er í sömu sæng og sá, sem yfirlýsinguna gaf, og sefur þar á málinu með honum, þá kann ég honum litlar þakkir fyrir.