21.12.1934
Sameinað þing: 27. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

1. mál, fjárlög 1935

9) TT:

Ég hefi álitið, að launalögin mundu koma til endurskoðunar á næsta þingi. En úr því að búið er að hreyfa við þeim nú, með því að afnema dýrtíðaruppbót á hærri launum samkv. launalögum, þá tel ég réttast, að hið sama gangi yfir þá starfsmenn hins opinbera, sem taka laun utan launalaga, og segi já.