08.11.1934
Neðri deild: 31. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í C-deild Alþingistíðinda. (4126)

128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna

Forseti (JörB):

Það hefir hlaupið mikið kapp í þessar umr., og meira en venja er til, og mér virtist svo snemma í umr., að ýmsir ættu högg í annars garði, og hefi ég því lítið hlutazt til um, hvernig sem ummæli hafa fallið og þó þau hafi verið allhörð. Ég mæli þetta ekki sérstaklega til hv. seinasta ræðumanns, því að ámóta ummæli hafa fallið hjá ýmsum öðrum hv. þm., en ég vil biðja hv. þm. að gæta þess, að stilla máli sínu í hóf, þótt sumum kunni að þykja miður, hvernig ummæli hafa fallið í þeirra garð.