09.11.1934
Neðri deild: 32. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (4129)

128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna

Forseti (JörB):

Ég vil eindregið beina þeirri ósk til hv. þdm., að þeir viðhafi ekki miklar málalengingar um þetta mál, svo að það geti gengið til n. Sérstaklega vil ég beinu þessu til þeirra, hv. þm., sem hafa nú kvatt sér hljóðs um málið og eiga eftir að tala.