12.12.1934
Neðri deild: 57. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í C-deild Alþingistíðinda. (4151)

128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna

Sigurður Kristjánsson:

Ég vil bera það undir hæstv. forseta, hvort honum finnist ekki meðferð þessa frv., frv. um Skuldaskilasjóð útgerðarmanna, nógu óviðeigandi, þó að það sé ekki sett neðst á dagskrána á morgun, þegar aðeins fékkst að byrja á einni ræðu um það nú á þessum fundi. Mér finnst slík meðferð sem þessi, á jafnmikilsverðu máli sem þessu, alveg óviðeigandi, og vil því mælast til þess við hæstv. forseta, að hann ætli því sómasamlegt sæti á dagskránni á morgun.