12.12.1934
Neðri deild: 57. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í C-deild Alþingistíðinda. (4152)

128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna

Forseti (JörB):

Það er rétt hjá hv. þm., að frv. þetta er neðarlega á dagskránni, en svo stendur á því, að ég var búinn að ákveða röð málanna, áður en ég vissi, hve skammt komst með umr. þessa máls nú. Mun ég því á morgun taka það fyrir á undan ýmsum þeim málum, sem ofar standa á dagskránni, og vænti ég, að hv. þm. geti gert sig ánægðan með það.