21.12.1934
Sameinað þing: 27. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (416)

1. mál, fjárlög 1935

2) TT:

Ég hefi talið það skyldu Alþ. að miðla fé ríkissjóðs eftir þörfum allra landsmanna, en ekki eftir þörfum flokksmanna ríkisstj., eins og gert hefir verið í þessu tilfelli, og þar sem ég álít, að ríkisstj. geti ekki ranglátar farið með fé ríkissjóðs en hér er gert, þá greiði ég atkv. gegn frv. og segi nei.