20.12.1934
Neðri deild: 65. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í C-deild Alþingistíðinda. (4242)
157. mál, lýðskóli með skylduvinnu nemenda
Frsm. (Gunnar Thoroddsen):
Út af brtt. hv. 1. landsk. vil ég taka það fram, að ég er henni algerlega mótfallinn. Hv. þm. talaði um, að málið þyrfti svo mikinn undirbúning, að ekki væri nógu langur tími fyrir næsta þing. Ég vil aðeins benda á, að sami hv. þm. hefir talið nægan tíma til þess að endurskoða alla réttarfarslöggjöfina fyrir næsta þing, og ætti það þó ekki að vera minna verk. Ég vil því eindregið leggja til. að brtt. sé felld.
Þá var hv. þm. Borgf. að hnýta í okkur flm. þessa frv. fyrir að það væri flutt af tómum fláttskap og hræsni, og hefði alltaf verið það. Mér er að vísu ekki kunnugt, hvernig verið hefir áður um flutning þess, því að ég hefi ekki átt sæti hér á þingi fyrr; en ég vil ákveðið mótmæla fyrir mína hönd meðflm., að það sé ekki flutt af fullri alvöru. Annars ætti hv. þm. að skilja, að nú, þegar komið er að þinglokum, er betri afgreiðsla á málinu að vísa því til stj., til undirbúnings undir næsta þing, en að láta það falla alveg niður. Eru því ummæli hv. þm. ekki annað en fleipur. Mér þykir einkennilegt, að þessi hv. þm., sem áður hefir fylgt frv. í meginatriðum, skuli nú rísa upp til andmæla og vera að tefja málið með málþófi, því að mér finnst ræða hans alveg óþörf. Ég vil því leggja til, að umr. verði styttar og gengið til atkv.