24.11.1934
Neðri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í B-deild Alþingistíðinda. (431)

3. mál, landsreikningur 1932

Frsm. (Sigfús Jónsson):

Þetta frv. hefir verið athugað í fjhn. Hefir n. borið hvern einstakan lið frv. saman við LR. og fundið það allt vera rétt. Sömuleiðis hefir n. athugað aths. yfirskoðunarmanna og svör ráðh. við þeim, og svo till. yfirskoðunarmanna, og hefir n. fallizt á þær till. til úrskurðar, og leggur því til, að frv. verði samþ. eins og það nú liggur fyrir.