24.11.1934
Neðri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í C-deild Alþingistíðinda. (4328)

20. mál, ríkisútgáfa skólabóka

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég ætla ekki að svara miklu, en ef hv. þm. Vestm. vill gera alvöru úr umkvörtunum sínum út af kennslubók þeirri, sem hann talar um, vil ég benda honum á að senda kæru í stjórnarráðið. Annars skal ég taka það fram, að þessi kennslubók er ekki gefin út af ríkisforlagi. Í henni mun vera lýst að einhverju leyti pólitískum flokkum í landinu, og skal ég játa, að ég tel það ekki heppilegt, og réttara að flokkarnir geri það sjálfir.