11.10.1934
Neðri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í C-deild Alþingistíðinda. (4442)

45. mál, virkjun Fljótár

Flm. (Garðar Þorsteinsson):

Frv. þetta er flutt samkv. ósk bæjarstj. Siglufjarðar, og fylgir því nákvæm grg. Sé ég því ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um það. Það hefir áður legið fyrir Alþingi. Ég vona, að því verði vel tekið af hv. þdm., og óska ég, að það verði látið ganga til 2. umr. og fjhn.