12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í C-deild Alþingistíðinda. (4457)

55. mál, þingsköp Alþingis

Stefán Jóh. Stefánsson:

Ég vil benda á það, að það er alveg laukrétt hjá hv. þm. V.-Húnv., að samkv. l. gr. frv. geta smáflokkar orðið útilokaðir frá þátttöku í Ed. Í öðru lagi vildi ég vekja athygli á því, að samkv. því, sem þetta frv. gengur út frá, er tæplega hægt að segja, að um hlutfallskosningu sé að ræða, heldur er hér bara gert ráð fyrir því, að flokkarnir tilnefni menn, og forseti lýsi því síðan yfir, að þeir séu rétt kjörnir. Ég hygg því, að frv. þetta þurfi rækilegrar athugunar við í n., enda verð ég að telja vafasamt, að það sé gerhugsað.