13.11.1934
Neðri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (4479)

59. mál, fiskiráð

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson):

Sjútvn. hefir klofnað um þetta mál. Meiri hl. leggur til, að það verði afgr. með rökst. dagskrá. Ég vil í því sambandi beina því til hæstv. forseta, að ég teldi réttast, að þetta mál væri tekið út af dagskrá og umr. frestað, af því að annað frv. er á leiðinni, borið fram að tilhlutun ríkisstj., sem fjallar alveg um sama efni.