20.11.1934
Neðri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í C-deild Alþingistíðinda. (4502)

59. mál, fiskiráð

Forseti (JörB):

Mér hefir borizt svo hljóðandi brtt. við rökst. dagskrána á þskj. 313:

„Rökst. dagskráin orðist svo:

Með því að í frv. um fiskimálanefnd o. fl. sem meiri hluti sjávarútvegsnefndar neðri deildar hefir flutt í hv. neðri deild. er séð á fullkomnari hátt fyrir því að ná þeim tilgangi, sem virðist vaka fyrir flm. frv. til laga um fiskiráð. heldur en gert er í því frumvarpi, og í trausti þess, að frv. um fiskimálanefnd o. fl. verði að lögum, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá“.

Þessi rökst. dagskrá liggur þá einnig fyrir hér, til umr.