20.11.1934
Neðri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í C-deild Alþingistíðinda. (4520)
59. mál, fiskiráð
Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson):
Hæstv. atvmrh. hefir sagt það, sem ég ætlaði að segja. Það má vera meiri stefnan, sem getur fleytt jafnheimskum manni og jafnmiklum glæpamanni og mér er lýst af þessum hv. þm. inn á þing. Ég er stoltur af að fylgja þvílíkri stefnu. Að öðru leyti mun ég ekki svara þessum peningadreng úr Kjósinni.