16.10.1934
Neðri deild: 11. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í C-deild Alþingistíðinda. (4548)

62. mál, sala lands Hvanneyrar til Siglufjarðarkaupstaðs

Flm. (Garðar Þorsteinsson):

Ég er ekkert á móti því út af fyrir sig, þó stj. væri veitt heimild til að selja landið áður en það losnar úr ábúð. Hinsvegar má geta þess, að ábúandinn er nú orðinn 70 ára gamall, og má því eftir venjulegum kringumstæðum búast við, að það líði ekki á löngu áður en jörðin losnar úr ábúð. En þetta er atriði, sem hv. n. athugar; ég fyrir mitt leyti sé ekkert á móti þeirri breyt., sem hv. þm. N.-Þ. stingur upp á.