17.11.1934
Neðri deild: 39. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í C-deild Alþingistíðinda. (4653)

144. mál, frystigjald beitusíldar

Garðar Þorsteinsson:

Ég vil leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvers vegna frv. um frystigjald beitusíldar er ekki á dagskrá í dag. Það var á dagskrá fyrir 3 dögum, en hefir ekki verið á dagskrá 2 undanfarna daga. Ég vil óska þess, að frv. verði a. m. k. sett á dagskrá næst.