10.10.1934
Sameinað þing: 4. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (4656)

52. mál, ábyrgð á láni

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég lít svo á, að þetta mál eigi að fá framgang. En afstaða mín til þessa máls felur ekkert í sér um afstöðu mína til ríkisábyrgða yfirleitt á þessu þingi. Afstaða mín markast af því, að fyrrv. stj. hafði gefið hreppsn. svo mikið undir fótinn í þessu máli, að ekki verði hjá því komizt að standa við það. Fyrrv. fjmrh. hafði útvegað lán fyrir rafveituna með hliðsjón af því, að ríkisábyrgð fengist, og taldi hann það áreiðanlegt. Finnst mér því ekki annað hægt en að veita þessa ábyrgð.