28.11.1934
Neðri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (4683)

163. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins

Hannes Jónsson:

Það mál, sem ég flutti snemma á þingi og þetta frv. er sprottið af, hefir ekki fengið leyfi n. til að koma á dagskrá enn sem komið er. Ég heimta, að málið verði afgr. frá landbn. og fái að koma á dagskrá hér, áður en farið er að setja þetta mál á dagskrá. Þetta er sanngirniskrafa. Ég hefi gengið eftir þessu dag eftir dag og viku eftir viku, en enga áheyrn fengið hjá hv. landbn.