23.11.1934
Sameinað þing: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í D-deild Alþingistíðinda. (4712)

162. mál, ábyrgð á láni fyrir Hafnarfjarðarkaupstað

Thor Thors:

Þessi till. til þál. um ríkisábyrgð virðist eiga alm. vinsældum að fagna hér í þinginu, og hefi ég fyrir mitt leyti ekkert við það að athuga og mun greiða till. atkv. En ég vildi einungis mælast til þess, að nokkuð svipuð ábyrgðarheimild fyrir ríkisstj., sem mér hefir verið falið að bera hér fram fyrir Stykkishólm, vegna rafveitu, ætti sömu vinsældum að fagna. Þetta er ákaflega áríðandi fyrir Stykkishólm, vegna hins nýja sjúkrahúss, sem þar er reist og bráðlega tekur til starfa.