22.10.1934
Efri deild: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (476)
13. mál, verðtollur
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Það er sama að segja um þetta frv. eins og það, sem var hér næst áður á dagskrá (frv. um bráðabirgðaverðtoll). L. um verðtoll hafa verið í gildi mörg undanfarin ár, þannig, að þau hafa verið framlengd frá ári til árs síðan þau voru sett fyrst, og það er alveg sjálfsagt, eins og nú stendur á, að framlengja þau einnig nú. Fjhn. leggur því einróma til, að svo verði gert.
Ég skal geta þess, að það er skakkt vitnað til eldri l. í 1. gr. frv. þar stendur 1927, en á að vera 1926. Hefir n. því borið fram till. um að leiðrétta þetta, og geri ég ráð fyrir, að það megi samþ. hana án atkvgr. Þar er aðeins um leiðréttingu að ræða, en enga efnisbreytingu.