24.10.1934
Efri deild: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í C-deild Alþingistíðinda. (4806)

35. mál, Kreppulánasjóður

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Ég skal vera fáorður um þessa brtt. á þskj. 179, því ég hefi raunar gert grein fyrir henni áður hér í hv. d. Með till. á að taka af öll tvímæli um það, að alstaðar á að vega síld, en ekki mæla, með því að fella ákvæðið um samkomulag úr frv. Ég tel frv. miklu æskilegra þannig, að engin tvímæli séu í þessu efni.