20.11.1934
Efri deild: 43. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í C-deild Alþingistíðinda. (4916)

151. mál, friðun náttúruminja

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Allshn. hefir ekki unnizt tími til að athuga þetta mál til fullnustu. En ég geri ráð fyrir, að það verði ekki um miklar breyt. að ræða á því frá n., og þess vegna hefir n. ekkert við það að athuga, þó að frv. verði samþ. til 3. umr. En ég vil aðeins beina þeirri ósk til hæstv. forseta, fyrir hönd n., að hann taki þetta mál ekki á dagskrá til 3. umr. fyrr en n. hefir unnizt tími til að ljúka athugunum sínum á frv., sem ég geri ráð fyrir, að verði næstu daga.