11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í C-deild Alþingistíðinda. (4973)

171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Þetta frv. er borið fram af því, að fyrirsjáanlegt er, að ekki verður nógur tími fram að 15. febr. til þess að undirbúa þau mál, sem þarf að bera fram á Alþ.

Þetta frv. er því fram borið einungis til þess að fá frest, en hann er hafður eins stuttur og mögulegt er.

Það er óþarfi að fylgja þessu frv. úr hlaði með frekari skýringu. Ég hefi ekkert á móti því, að samkomudagurinn verði færður fram til 20. eða 25. marz, ef menn óska þess.

Ég óska eftir, að málinu verði vísað til 2. umr.