29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í D-deild Alþingistíðinda. (5027)

169. mál, ábyrgð á láni fyrir Vestmannaeyjakaupstað

Emil Jónsson:

Ég vil benda á það, að þessi tvö lán, er hér er um að ræða, munu verða tekin um sama leyti hjá sama lánveitanda. Ef orðalaginu á till. Vestmannaeyjakaupstaðar verður breytt, er því enn meiri ástæða til þess að ætla, að aths. verði gerðar. Ég vil því, meðan ekki er séð, hvort þetta kemur að sök, leggja til, að till. verði eins orðuð og till. Hafnarfjarðarkaupstaðar og hv. þm. Vestm. ætlaðist upphaflega til.