30.10.1934
Efri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í D-deild Alþingistíðinda. (5035)

102. mál, vistarskóli fyrir vanheil börn og unglinga

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Í hv. Nd. var nýlega til umr. þáltill., þar sem skorað var á stj. að skipa milliþingan., sem undirbyggi fyrir næsta þing löggjöf um opinberar tryggingar og opinbera forsjá. Ég veit ekki, hvernig sú till. verður afgr., og geri það því að till. minni, að þessari þáltill. verði vísað til allshn. og umr. frestað. Með því móti væri hægt að afgr. hana í samræmi við þessa till. úr Nd., og færi vel á því.