17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í D-deild Alþingistíðinda. (5082)
86. mál, Vestmannaeyjavitinn á Stórhöfða
Emil Jónsson:
Ég ætla aðeins að segja nokkur orð. Mér er kunnugt af viðtali við vitamálastjóra, að hann telur, að margar vitabyggingar hér á landi séu nauðsynlegri en sú, sem hér um ræðir, enda þótt hún sé nauðsynleg. Ég hygg líka, að hann hafi einhvern tíma sagt hv. sjútvn. sitt álit. Ég vil því mælast til þess, að hv. sjútvn. fengi tækifæri til þess að athuga, hvað vitamálastjóri leggur til málsins með áorðnum breyt. Ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að vitamálastjóri sé þessu mótfallinn og telji annað nauðsynlegra í þessu efni, enda þótt þetta sé nauðsynlegt út af fyrir sig. Ég legg því til, að málinu verði aftur vísað til hv. sjútvn. til umsagnar.