07.11.1934
Neðri deild: 30. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í B-deild Alþingistíðinda. (535)
11. mál, einkasala á áfengi
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Það er aðeins örstutt aths. Ég hafði ekki séð þetta vottorð frá Jóni Vestdal, en nú hefi ég heyrt það, og í því stendur ekkert annað en það, að hægt sé að búa til bökunardropa og nota við það sérstakt efni, án þess að þeir verði skaðlegir. Það er ekki nægilegt, þó að bökunardroparnir séu ekki eitraðir, þeir verða einnig að vera nothæfir til þess, sem þeir eru ætlaðir, og þess vegna hnekkir þetta vottorð ekki þeim grundvelli, sem frv. er byggt á, þar sem það er byggt á því, að ekki sé hægt að framleiða nothæfa bökunardropa án þess að nota til þess spíritus. (JakM: Það er vitleysa). Það er alls ekki vitleysa, vegna þess, að ekki er hægt, eftir þeirri skýrslu, sem fyrir liggur, að gera bökunardropa nothæfa, nema með því að nota þetta efni í þá, þó að hægt sé að gera þá óskaðlega, það er annað atriði, og þó að hægt sé að framleiða eitthvað, sem kallað er bökunardropar, þá er það ekki nægilegt; það verður að vera fullkomin vara, sem hægt er að bjóða fram og er samkeppnisfær. Og þar sem ekki er hægt að framleiða þessa vöru fullkomlega án þess að nota í hana spíritus, þá er sjálfsagt að láta það fyrirtæki framleiða þessa vöru, sem hefir spíritus með höndum.
Um eftirlitið sagði ég það vitanlega, að það væri nauðsynlegt með úthlutun iðnaðaráfengis, þó að áfengislöggjöfin yrði afnumin.