04.10.1934
Sameinað þing: 2. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

Kosning fastanefnda

Forseti (JBald):

Það er rétt að lýsa listum þeim, sem komnir eru. Á A-lista eru nöfnin: Jónas Jónsson, Héðinn Valdimarsson, Bjarni Ásgeirsson, Stefán Jóh. Stefánsson. Á B-lista: Ólafur Thors, Magnús Jónsson, Pétur Magnússon. Á C-lista: Magnús Torfason. Á D-lista: Ásgeir Ásgeirsson.

Þar sem komin eru fram fleiri nöfn en kjósa á í nefndina, en komið hefir til orða að veita afbrigði til að fjölga í nefndinni, ákveð ég fundarhlé í 15 mínútur.