04.10.1934
Sameinað þing: 2. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (55)

Kosning fastanefnda

forseti (JBald):

Mér hefir verið skýrt frá, að flokkarnir hafi fallizt á, að fjölgað verði mönnum í utanríkismálanefnd úr 7 upp í 9. Ég leyfi mér því að stinga upp á, að þessi afbrigði frá þingsköpum verði leyfð.