26.10.1934
Neðri deild: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (560)

13. mál, verðtollur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Fyrir frv. þessu þarf ekki mikla framsögu. Hér er farið fram á að framlengja hin almennu verðtollslög. Ég vil aðeins leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.