12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í B-deild Alþingistíðinda. (566)
8. mál, tekju- og eignarskattsauki
Ólafur Thors:
Við sjálfstæðismenn í fjhn. höfum ekki viljað samþ. þetta frv., a. m. k. ekki að svo stöddu. Sjálfstfl. lítur svo á, að nauðsynlegt sé að skera niður útgjaldahlið fjárl. svo sem frekast er unnt. Þegar fyrir liggja till. um, hvað hægt sé að gera í því efni, þá er Sjálfstfl. reiðubúinn til samninga við stjórnarflokkana um þá skattauka, sem þörf verður fyrir til þess að hægt verði að afgr. fjárl. tekjuhallalaus. Því flokkurinn vill ekki synja stj. um þá tekjuöflun, sem til þess er nauðsynleg, þó hann vilji hinsvegar ekki á þessu stigi taka jákvæða afstöðu til einstakra tekjuaukafrv., sem fyrir liggja.