12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í B-deild Alþingistíðinda. (567)

8. mál, tekju- og eignarskattsauki

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég vil aðeins benda á, að sá tekjuauki, sem hér er um að ræða, viðkemur útgjöldum ársins í ár, sem þegar er búið að ákveða. Tilboð form. Sjálfstfl., sem er allrar virðingar vert, snertir vafalaust tekjuöflun fyrir næsta ár, en vart tekjur yfirstandandi árs, sem þegar er búið að ákveða, hvernig skuli varið.