10.10.1934
Efri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í B-deild Alþingistíðinda. (604)

30. mál, síldarbræðslustöð

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég skal svara fyrirspurn hv. þm. Það er ekki búið að meta leiguna. Í húsinu liggur fyrir mikið af vörum, einkum lýsi og kolum. Annars mun leigan verða miðuð við ársvinnsluna.