10.10.1934
Efri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (690)

21. mál, heimild rannsóknarstofnana ríkisins til lyfjasölu

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Eins og hv. þdm. er kunnugt, býr rannsóknarstofa háskólans nú til bóluefni og fleiri lyf. Þetta starf eykst að líkindum á næstunni, en hinsvegar orkar það tvímælis, hvort stofnun þessi muni hafa tvímælalausan rétt til að selja þessa framleiðslu sína, og er því þetta frv. fram borið. Vil ég leggja til, að frv. sé vísað til allshn.