14.11.1935
Neðri deild: 36. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (705)

21. mál, heimild rannsóknarstofnana ríkisins til lyfjasölu

Frsm. (Bergur Jónsson):

Ég átti eiginlega að vera frsm. fyrir þessu frv., en öll n. er, eins og hv. þm. Snæf. tók fram, sammála að öllu leyti um frv. Ég var hér ekki viðstaddur 2. umr. um frv. og tók því ekki til máls nú, en skal þó benda á það, að fylgiskjöl með frv., bæði umsögn landlæknis og umsögn forstöðumanns rannsóknardeildar háskólans, sanna það, að sjálfsagt er að samþ. þetta frv. Hinsvegar hefir félag lyfsala lagt á móti frv., en n. hefir ekki getað séð, að þeirra álit hafi við rök að styðjast.