05.10.1934
Neðri deild: 2. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (84)

Kosninga fastanefnda

Ólafur Thors:

Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir viturlegar till. um einhvern litla bróður, sem þessi stóri maður var að tala um. En Sjálfstfl. þarf ekki að fá neinar ráðleggingar frá honum, hvorki í þessu máli né öðru.

Að öðru leyti vil ég segja það, að ég fyrir mitt leyti hefi ekkert á móti því að verða við þessari ósk Bændafl., en það hygg ég að Sjálfstfl. muni ekki aðhyllast, enda er ekki farið fram á það af neinum réttum aðila, að afhenda öðrum flokki, hvorki Bændafl. né öðrum, neitt af sínum sætum í þessari n.