05.10.1934
Neðri deild: 2. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (85)

Kosninga fastanefnda

Hannes Jónsson:

Ég vil taka það fram, að ég ætlast ekki til, að nokkur flokkur þurfi að missa af nokkrum rétti, sem hann hefir til þátttöku í þessari eða öðrum n., en fer aðeins fram á það við d., að hún fallist á þessa ósk okkar Bændaflokksmanna um að fjölga í n., til þess að við getum tekið þátt í störfum hennar ásamt öðrum flokkum.