08.11.1934
Neðri deild: 31. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (853)

27. mál, sláturfjárafurðir

4) SH:

Sökum þess, að ég álít, að l. standi til bóta, þar sem reynslan hefir sýnt, að hér eru miklir gallar á, greiði ég ekki atkv. á móti frv., en af því að mér er líka kunnugt um, að það getur orðið gereyðileggjandi fyrir fjölda bænda, vil ég ekki heldur samþ. það, og greiði ég því ekki atkv.