05.10.1934
Neðri deild: 2. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (86)

Kosninga fastanefnda

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég vil taka það fram, að ég sé ekki, hvernig Bændaflokksmenn ættu að koma manni að í þessari n., því að þó að fjölgað væri þar upp í í menn, þá skilst mér, að Sjálfstfl. verði að gefa þeim sæti frá sér, og ég sé ekki ástæðu til að fjölga í n. til þess, því ef hann ætlar sér að gefa sæti, þá getur hann gefið annaðhvort þeirra tveggja, sem hann hefir, því þetta verður gjöf hvort sem er.