29.10.1934
Efri deild: 24. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í B-deild Alþingistíðinda. (909)
112. mál, útflutningur á síldarmjöli
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Það þarf ekki að hafa langa framsögu fyrir þessu máli, því hv. deild er kunnugur tilgangur þessara laga. En hann var sá, að fyrirbyggja, að fóðurbætisskortur gæti orðið í landinu, og var því bannað að flytja út síldarmjöl nema með leyfi landbúnaðarráðh. - Ég legg svo til, að frv. verði vísað til 2. umr. og landbn.