14.11.1934
Neðri deild: 36. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í B-deild Alþingistíðinda. (920)

112. mál, útflutningur á síldarmjöli

Frsm. (Bergur Jónsson):

Eins og sést í frumvarpinu, er það borið fram í tilefni af bráðabirgðalögunum frá 26. september síðastl. um bann gegn útflutningi á síldarmjöli án leyfis ráðh. Sjútvn. hefir athugað þetta frv. og leggur til, að það verði samþykkt með þeirri breyt., að útflutningur á síldarmjöli sé bannaður, ef nauðsynlegt sé vegna fóðurskorts; ennfremur með breyt. á fyrirsögn frv. Hv. þm. V.-Húnv. hefir borið fram brtt. við frv., og sé ég ekki ástæðu til að fella þá brtt. Þó hefi ég ekki borið það undir sjútvn., en geri ekki ráð fyrir, að hún hafi neitt við brtt. að athuga.