19.10.1934
Neðri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (940)
17. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Eins og nál. á þskj. 106 ber með sér, er fjhn. sammála um að leggja þetta frv. fyrir hv. d. óbreytt frá 1. umr. Eins og tekið er fram í grg. frv. felur það í sér ákvæði um að innheimta skemmtanaskatt til ársloka 1935 með sama álagi, 8%, og gilt hefir frá því á árinu 1933. Frv. þetta er því framlenging á gildandi lögum í þessu efni, og er það eitt af þeim tekjuaukafrv., sem hæstv. stjórn ber fram til þess að geta staðizt nauðsynleg útgjöld ríkissjóðs bæði til verklegra framkvæmda og fleira. Ég vil því í nafni n. óska þess, að frv. verði samþ. og vísað til 3. umr.