09.10.1934
Neðri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (962)

22. mál, verkamannabústaðir

Thor Thors:

Það er aðeins aths. Mér er það að sjálfsögðu ljóst, að fjármagn byggingarsjóðs eykst ekki, þótt fleiri félög en eitt hafi leyfi til bygginga innan sama svæðis. En fleiri menn verða þess þá fýsandi að notfæra sér lögin, og geta legið til þess ýmsar ástæður, sem ég hirði ekki að greina hér.