09.10.1934
Neðri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (963)

22. mál, verkamannabústaðir

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vil benda hv. þm. á það í þessu sambandi, að hingað til hefir það verið svo, og ég geri ráð fyrir, að því verði ekki breytt nú, að færri hafa komizt að en óskað hafa eftir að notfæra sér hlunnindi laganna.