15.11.1935
Neðri deild: 74. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2416 í B-deild Alþingistíðinda. (106)

Afgreiðsla þingmála

Hannes Jónsson:

Ég vil í þessu sambandi endurtaka þá ósk mína til hæstv. forseta, að hann geri gangskör að því að reka eftir þeim málum, sem ég hefi tvívegis gert sérstaklega að umtalsefni, að lægju hjá n. í þinginu. vænti ég, þar sem hann hefir tekið þeirri málaleitun vel, sem nú kom fram um að ýta á eftir, að frv., sem liggur hjá n. nái að sjá dagsins ljós, að hann taki einnig vel undir þessa kröfu mína.