15.11.1935
Neðri deild: 74. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2416 í B-deild Alþingistíðinda. (108)
Afgreiðsla þingmála
Gísli Sveinsson:
Herra forseti! Það mun vera að bera í bakkafullan lækinn að óska, að hæstv. forseti hlutist til um, að n. skili málum, því það er mjög algengt, að n. setjast á mál og halda þeim mjög lengi hjá sér, og hitt líka, að þdm. vilja ekki una því. Á öndverðu þingi bar ég ásamt fleirum m. a. fram frv. um lækkun berklavarnagjalds sýslusjóða til ríkissjóðs. Mun það hafa farið til hv. fjhn. þessarar d. það minnir mig m. a. á þetta, að nú er útbýtt hér till. um tekjustofna bæjar- og sveitarfélaga, þar sem tilgangurinn er, að ríkisstj. undirbúi þetta mál. Raunar þolir það enga bið, að einhver lagfæring eigi sér stað á þessu sviði. Vil ég því bæta því við áskoranir annara hv. þm., bæði til hæstv. forseta og hv. fjhn., að þetta mál verði ekki dregið lengur á langinn, heldur fái að koma inn í d.